Heilsugæsla

Skólaheilsugæsla
Heilsugæsla Borgaskóla er á vegum Heilsugæslustöðvarinnar í Grafarvogi. Erna Valdimarsdóttir er skólahjúkrunarfræðingur skólans og hefur hún viðveru í skólanum miðvikudaga-fimmtudaga og föstudaga frá kl 8:00 - 14:00.

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.

Meginmarkmið skólaheilsugæslu er að stuðla að því að börn fái að vaxa, þroskast og stunda nám sitt við bestu andlegu, líkamlegu og félagslegu skilyrði sem völ er á.

  • Heilsugæsla skólabarna er framhald af ung-og smábarnavernd.
  • Skólaheilsugæslan leitast við að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra.
  • Starfsfólk skólaheilsugæslu vinnur í náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem að málefnum nemenda.

Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Allar nánari upplýsingar á  heilsuvefnum http://www.6h.is