Námsráðgjöf

Námsráðgjafi er málsvari nemenda og trúnaðarmaður. Hann leitast við að aðstoða þá við lausn ýmissa mála sem upp koma. Hann stendur vörð um velferð nemenda á sem breðustum vettvangi og veitir þeim ráðgjöf.

Námsráðgjafi starfar í þágu nemenda, styður þá og liðsinnir í málum sem snerta m.a.

  • Nám, námstækni og prófkvíða
  • Framhaldsnám og starfsval
  • Persónuleg mál

Aðstoð námsráðgjafa beinist að því að auka þekkingu nemenda á sjálfum sér, viðhorfum sínum, áhuga og hæfileikum, þannig að þeir fái betur notið sín í námi og starfi.

Ef nemandi á í erfiðleikum með heimanám, námstækni, er óákveðinn, leiður eða haldinn prófkvíða er heimsókn til námsráðgjafa góður kostur.

Ef nemandi er feiminn, finnur fyrir einmannaleika, verður fyrir stríðni eða á í samskiptaerfiðleikum getur verið gott að tala við námsráðgjafa.

Fríður Reynisdóttir, námsráðgjafi