|

Skólinn er staðsettur í norðanverðum Grafarvogi í miðju Borgahverfinu. Hann er heildstæður grunnskóli, stofnaður 1998 og í honum stunda 335 nemendur nám í 16 bekkjardeildum. Flestir nemendur skólans eru úr hverfinu. Við skólann starfa 35 kennarar og 20 aðrir starfsmenn. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á góða líðan nemenda og starfsfólks sem forsendu árangurs í skólastarfinu. Skólahúsnæðið er nýtt, aðbúnaður góður og skólinn hefur á að skipa áhugasömu starfsfólki. Fjölbreyttar kennsluaðferðir og viðfangsefni, jákvætt viðmót og góð umgengni hafa einkennt skólastarfið frá upphafi ásamt nýbreytni og þróunarstarfi.
Í mars 2004 hlaut Borgaskóli hvatningarverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir þróun einstaklingsmiðaðs náms í 4. bekk.
Í ágúst 2004 hlaut Borgaskóli umgengnisverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur. Það var í þriðja sinn á sex árum sem skólinn fékk þessi verðlaun fyrir snyrtilega umgengni og góð samskipti innan skólans.
Í Borgaskóla er lögð áhersla á að búa nemendum örvandi námsumhverfi og beita fjölbreyttum kennsluaðferðum sem hæfa viðfangsefnum hverju sinni.

|
|
|
|
|