Bókasafn
Af hverju ætti maður að lesa?
Þú lest það sem þú sjálf(ur) velur - bækur um ævintýri, ráðgátur, dýr, brandara, vísindi, hrylling, íþróttir, ævisögur og margt fleira.
Það getur verið skemmtilegra en að taka til í herberginu sínu.
Þú hefur eitthvað annað að gera en að liggja í leiðindum og leti.
Þú getur gert þig miklu færari í lestri.
Þú getur skroppið í allt annan heim.
Það er gott að fara á bókasafnið.
Þú færð líklega að vera í friði.
Það kostar ekki neitt.
Það er gaman.
Þú fræðist.


Upplýsingar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Skólasafnið er í björtu og rúmgóðu húsnæði á annarri hæð skólans. Beinn sími er  577 2913.
Bókasafnið er opið, mánudaga og miðvikudaga frá kl. 12-14, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga frá kl. 8-14. Starfsmenn eru Svanhildur Halldórsdóttir og Ólafía G. Leifsdóttir.

Safnkostur
Á safninu eru skáldsögur og fræðibækur fyrir alla aldurshópa en einnig  hljóðbækur, geisladiskar, spil , myndbönd, DVD og tímarit. Upplýsingar um öll gögn er að finna í Gegni sem er rafrænt landskerfi bókasafna. 

Starfsemi skólasafnsins
Felst m.a. í útlánum, sögustundum, safnakennslu  og heimildaleit. Skólasafninu er meðal annars ætlað það hlutverk að styðja sem best við það sem fer fram í skólanum og aðstoða nemendur og starfsfólk við öflun hverskonar efnis.

Markmið safnsins eru m.a.:

  • að leiðbeina nemendum við að nota safnið við nám og til skemmtunar.
  • að safnkosturinn hafi fræðslu og uppeldislegt gildi og sé aðgengilegur öllum nemendum  og starfsfólki skólans.
  • að hjálpa nemendum  að verða sjálfbjarga við að afla heimilda við skólatengd verkefni og finna þau gögn sem tilheyra. safninu að örva áhuga nemenda á bókum og lestri.
  • að þjálfa hlustun og eftirtekt með sögustundum.
  • Stefnt er að því að allir nemendur fái bókasafnsfræðslu og læri m.a. á flokkunarkerfi safnins Dewey.

Á skólasafninu gilda einfaldar reglur

  •  Öllum er frjálst að skoða og lesa bækur og rit á safninu.
  • Við göngum hljóðlega um og tökum tillit til annarra.
  • Við förum vel með safngögn og göngum frá öllu á sinn stað eftir okkur.
  • Fræðibækur eru ekki lánaðar út af safni nema til heimildavinnu í skólanum.
  • Útlánstími er 3o dagar.

Útlán

  • Allir nemendur og starfsmenn skólans eiga lánþegaskírteini sem eru geymd á bókasafninu.
  • Útlánstími er 30 dagar og ef þörf krefur er hægt að framlengja lán.
  • Flestar bækur safnsins eru lánaðar heim, orðabækur og önnur uppsláttarrit sem eru sérstaklega merkt eru þó aðeins til afnota í skólanum.
  • Myndbönd/diskar eru einungis lánuð út til kennara skólans.