| Upplýsingar |
|
|
|
Nesti og málsverðirEkki þarf að fjölyrða um gildi hollrar og góðrar næringar fyrir líðan barnanna og árangur þeirra í skólanum. Staðgóður morgunverður áður en nemendur koma í skólann er forsenda þess að þeir geti einbeitt sér og notið skólastarfsins. Í mötuneytinu hefur þjónustan verið bætt enn meir því nú er boðið upp á hafragraut fyrir nemendur áður en kennsla hefst. Vonum við að það gefist vel. Í nestistímum/ morgunhressingu er reiknað með að nemendur komi með ávexti, samloku eða annað létt nesti. Vegna vistverndar er óskað eftir að nemendur komi ekki með nesti í einnota plastumbúðum né fernum. Athuga ber að nemendur taki með sér heim afganga af nesti sínu þannig að foreldrar geti fylgst með matarvenjum. Nemendur eiga kost á að kaupa heita máltíð í hádeginu alla daga vikunnar. Greitt er fyrir matinn mánuð í senn. Sjá nánari upplýsingar hér fyrir neðan. Einnig hafa nemendur afnot af örbylgjuofni og mínútugrillum í matsal. Eingöngu er leyfilegt að matast í matsal skólans nema í nestistímum 1.-7. bekkjar. Nemendur 8. -10. bekkjar borða morgunhressingu í matsal og geta keypt sér drykki og brauðmeti í mötuneytinu. Einnig geta þeir keypt miða fyrir stakar máltíðir í hádeginu. Fyrirkomulag vegna kaupa á stökum máltíðum fyrir nemendur í 8.-10. bekk er eftirfarandi: Í nemendasölu skrá nemendur sig og kaupa matarmiða fyrir þá daga sem þeir ætla að vera í mat. Ef þeir hafa ekki pantað geta þeir athugað fyrir lok matartíma hvort matur sé eftir og keypt þá. MataráskriftVinsamlega athugið að við skráningu í mat þá gildir almennt sú regla að afgreiðsla matar hefst 1. næsta mánaðar nema um annað sé samið sérstaklega. Ekki er hægt að senda nemendur með pöntunarblað og búast við að þeir fari í mat samdægurs. Ef nemandi vill hætta í mataráskrift þarf að fylla út blað og skila inn á skrifstofu skólans eða afskrá í gegnum Rafræna Reykjavík.. Það þarf að gera í síðasta lagi 20. mánaðarins til að taka gildi þann 1. næsta mánaðar. Tölva og skjár eru við matarskömmtunarborðið í skólanum og nemendur í áskrift fá lykilnúmer sem þeir stimpla inn. Mynd og upplýsingar um áskrift koma þá fram á skjánum. Einnig kemur fram ef um ofnæmi og óþol er að ræða. Mikilvægt er að láta skólahjúkrunarfræðing vita ef um slíkt er að ræða. Áskriftartímabil hefst fyrsta skóladag að hausti. Sölu lýkur síðasta skóladag fyrir skólaslit. Ef nemendur fara í ferðalög á vegum skólans er sent með þeim nesti sem samsvarar máltíð. MjólkuráskriftNemendur í 1.-7. bekk geta einnig keypt mjólk með morgunnesti. Mjólkuráskrift, kr 20.- á dag, er bindandi og er innheimt í einu lagi á hverri önn. Ef ekki er óskað eftir áframhaldandi mjólkuráskrift þá þarf að segja upp fyrir lok annar með því að hafa samband við skrifstofu. VerðMánaðarlegt jafnaðargjald er kr. 5000.- . Innheimt er 9 sinnum á skólaári frá september til loka maí. Börn umfram tvö í áskrift með sama lögheimili fá frían mat. Greitt er fyrir yngstu börnin. Fjárhæð fæðisgjalds og systkinaafsláttar á hverjum tíma er samkvæmt gjaldskrá Menntasviðs Reykjavíkurborgar eins og hún er birt á heimasíðu sviðsins www.menntasvid.is. Nemendur í 8.-10. bekk geta pantað staka máltíð á kr. 300.- InnheimtaInnheimta vegna mötuneytis Borgaskóla fer í gegnum Innheimtudeild Menntasviðs Reykjavíkur og á sér stað eftir á með greiðsluseðlum, boð- eða beingreiðslum. Gjalddagi er í byrjun hvers mánaðar og eindagi 30 dögum síðar. Hægt er að setja mataráskrift í beingreiðslu með því að hafa samband við eigin viðskiptabanka og í boðgreiðslur á kreditkort með því að hafa samband við skrifstofu skólans. Það er skólanum vitaskuld mjög mikilvægt að greiðsluseðlar séu greiddir á tilsettum tíma. Það eru ekki síður hagsmunir foreldra að standa í skilum því vanskil baka þeim mikinn aukakostnað. Innheimtuferli vegna vanskilaSéu gjöld vegna skólamáltíða enn ógreidd að eindaga liðnum er foreldrum/forráðamönnum send innheimtuviðvörun. Þó fá hvorki þeir sem gert hafa beingreiðslusamning né þeir sem greiða með boðgreiðslum send sérstök aðvörunarbréf. Innheimtuviðvörun vegna vanskila er send 10 dögum frá eindaga með 9 daga greiðslufresti. Hafi reikningur ekki verið greiddur 50 dögum eftir gjalddaga er krafa send í milliinnheimtu. Þá er eingöngu hægt að semja um að greiða skuldina hjá þeim sem sér um milliinnheimtuna. Hafi ekki verið greitt innan 110 daga frá gjalddaga áskilur Menntasvið Reykjavíkur sér rétt til að segja upp mataráskrift barnsins. Uppsögn miðast við mánaðarmót og er uppsagnarfrestur einn mánuður. Auk hefðbundinna dráttarvaxta fellur kostnaður við útsendingu innheimtuviðvörunar og kostnaður við milli- og lögfræðiinnheimtu á greiðanda.
|









