Spennandi ratleikur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Síðasta kennsludag skóla var ratleikur fyrir 1.-7. bekk á meðan unglingarnir fóru í HÍ á vísindadaginn þar. Þetta var mjög spennandi þar sem bekkjunum var skipt upp í lið sem kepptust við að safna sem flestum brosköllum.  Þau fóru á hina ýmsu staði í nágrenni Borgaskóla og öfluðu ýmiss konar upplýsinga, söfnuðu jurtum, sjávardýrum og steinum. Þau greindu þetta eftir myndum, skiluðu inn og fengu broskall fyrir hvert unnið verkefni. Það var dýrðarinnar veður og skemmtu allir sér hið besta.