Hringrás - spíta grafin niður og upp aftur. Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Við í 3. bekk grófum niður spítu þann 30. september 2009 með ýmsum hlutum, bæði lífrænum og ólífrænum. Hér á myndinni má sjá þau Hilmi, Rakel og Báru halda á þessari spítu. Á henni var appelsínubörkur, LGG, bananabiti, bréf, lok af jógúrt, drykkjarumbúðir, plastpoki, Cherios-hringir, flatbrauð og eggjaskurn.

.

Svona leit svo spítan út þegar við grófum hana upp 3. júní 2010 og eins og sjá má hafa allir lífrænu hlutirnir eyðst en hinir ólífrænu eru nánast eins og þeir voru.

.