| Vor-fílingur |
|
|
|
|
Já, það er sannalega kominn vorhugur í okkur í Borgaskóla. Veðrið hefur leikið við okkur og nú fara seinustu dagarnir í hönd. Undanfarið höfum við verið að ýta á eftir nemendum á ljúka ýmsum vinnubókum og heftum sem þeir hafa verið að vinna í vetur og hefur það gengið ágætlega. Enn er þó nokkuð eftir hjá sumum og gefst þeim kostur á að klára verkin sín heima að þessu sinni enda löng helgi framundan :) Annar í hvítasunnu lengir helgina um einn dag og að auki er starfsdagur settur á þriðjudaginn. Þann dag eru nemendur í fríi en Hvergiland er opið fyrir þá sem eru þar alla jafnan. Nemendur eiga því ekki að mæta í skólann fyrr en á miðvikudaginn. Þann dag verður könnun í lesskilningi. Á fimmtudag verður prófað í skrift og stafsetningu og á föstudag á stærðfræði. Gátlistinn fyrir stærðfræðiprófið kemur ekki heim fyrr en á miðvikudag en íslensku- gátlistinn er komin heim hjá flestum. Skila skal gátlistunum á þeim dögum sem prófin eru. Þá erum við farnar að senda bækur og gögn heim með nemendum til að grynnka á bunkanum sem þau þyrftu annars að burðast með á skólaslitadaginn :) Hafið það gott í fríinu Með bestu kveðju Anna Þóra og Eiríka |








