Einelti Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Borgaskóli er þátttakandi í í Olweusarverkefninu gegn einelti, sem er samstarfsverkefni menntamálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands og Heimilis og skóla.
Olweusaráætlunin byggist á fremur fáum meginreglum sem miða að því að  endurbæta félagslegt umhverfi í skólanum og að skapa skólaumhverfi sem einkennist af :
  • hlýlegum og jákvæðum áhuga og alúð hinna fullorðnu,
  • ákveðnum römmum vegna óviðunandi atferlis
  • stefnufastri beitingu neikvæðra afleiðinga (viðurlaga) sem hvorki eru líkamlegar né óvinveittar, brjóti nemandi gegn þeim reglum sem ákveðnar hafa verið
  • fullorðnum í skóla sem virka sem yfirboðarar við vissar aðstæður
Helstu markmið aðgerðaáætlunarinnar eru að draga úr tækifærum til eineltis og byggja upp afstöðu gegn einelti.
                                                                                     Byggt á Handbók Dan Olweusar  
 
 
 
Hér til hliðar eru ýmsar upplýsingar sem tengjast þessu málefni.
Með því að smella hér er hægt að sjá skýrslur í skjalasafni varðandi forvarnir.