Íþróttadagar og vísindi Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Þessar tvær síðustu vikur hafa einkennast af útivist og lærdómi í öðru umhverfi en skólastofunni. Það hefur verið frábært veður þessa daga og gert allt starf skemmtilegra. Nú eru það íþróttadagar og vísindadagar en HÍ bauð mið- og unglingastigi að  koma í heimsókn og hafa starfsmenn þar skipulagt verkefni fyrir nemendur. Einnig fór sjöundi bekkur líka í Norræna húsið þar sem einnig er dagskrá fyrir þau um vísindi. En nemendur læra líka um vísindi í þeirri náttúru sem hér er við bæjardyrnar hjá okkur. Yngri nemendur hafa farið í útilegur í Geldinganesið og Gufunes og lært mikið um lífríki fjörunnar og í skógum. Áætlun er um að fá að setja upp útikennslustofu í fjörunni við veginn út í Geldinganesið og er verið að athuga með það mál hjá viðkomandi stofnunum.

 
Skólaslit og einkunnaafhending Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Útskrift hjá 10. bekk verður í sal skólans þriðjudaginn 8. júní, kl 18:00.
Eftir athöfnina fáum við okkur kaffi saman og eru foreldrar beðnir að koma með heimabakkelsi eða annað góðgæti til að setja á hlaðborð. Skólinn býður upp á kaffi og kalda drykki.

Hlökkum til að eiga hátíðlega stund með ykkur.

Miðvikudaginn 9. júní er einkunnaafhending hjá 1.-9. bekk.

  • 1.-3. bekkur kl 9:00,
  • 4.-6. bekkur kl 10:00
  • 7.-9. bekkur kl 11:00.
 
Fjöruferð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Annar bekkur fór í fjöruferð um daginn. Krakkarnir óðu óhikað út í ískalt Atlantshafið og unnu svo stærðfræðiverkefni með líffræðiívafi. Þessir krakkar hafa verið í útikennslu í allan vetur og eru orðnir ýmsu vanir.
 
Fleiri myndir á myndasíðunni- árgangur 2002.
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 4 af 52