Fjör í skrúðgöngu Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Nemendur í 4. bekk ásamt hópi nemenda úr 10. bekk og öðrum árgöngum tóku þátt í  byrjunaratriði Barnamenningarhátíðar. Gulur var þemalitur okkar og voru 4. bekkjar nemendur klæddir í þann lit. Nokkrir nemendur úr 10. bekk voru með trúðaatriði sem þau sömdu og spunnu á staðnum. Þau voru máluð sem trúðar og vöktu mikla athygli. Skólahljómsveitir borgarinnar sameinuðust í eina og voru í fararbroddi. Þetta var mikið fjör og skemmtilegur viðburður.

 
Skráning í Vinnuskólann hefst 14. apríl Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Búist er við að 3500 nemendur starfi í Vinnuskóla Reykjavíkur í sumar. Skráning hefst 14. apríl í Rafrænni Reykjavík og verður sú nýbreytni tekin upp að foreldrar sjá um skráninguna í samráði við krakkana. Nemendum úr 8.-10. bekk grunnskóla býðst starf í Vinnuskólanum.

Vinnutímabilið í sumar spannar sjö vikur og þurfa nemendur að velja með foreldrum sínum þær vinnuvikurnar sem til greina koma. Nemendur vinna ýmist þjár til fjórar vikur. Reynt verður að koma til móts við flestar óskir. Rafræn reykjavík er á heimasíðu borgarinnar, www.rafraen.reykjavik.is. Þar skrá foreldrar börn sín einnig á námskeið hjá borginni og á frístundaheimili.


„Vinnuskólinn er í langflestum tilvikum fyrsti vinnustaður unglinga. Þeir eru á forræði foreldra sinna og því er eðlilegt að þeir skrái börnin sín í vinnuskóla í samráði við þau. Foreldrar sem hafa ekki lykilorð að Rafrænni Reykjavík geta fengið það sent í heimabankann eða heim til sín, “segir Guðrún Þórsdóttir skólastjóri Vinnuskólans.

Foreldrar af erlendu bergi brotnu geta leitað eftir aðstoð við að skrá börn sín í Vinnuskólann hjá námsráðgjöfum skólanna.

Frekari upplýsingar veitir:
Guðrún Þórsdóttir í síma 844 8902
 

 
Foreldradagar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 Í næstu viku bjóðum við ykkur sérstaklega að heimsækja barnið/­börnin ykkar á vinnustað þess/þeirra. Þið eruð velkomin í hvaða kennslustund sem er og ráðið alveg hve lengi þið staldrið við. Til hagræðingar fyrir kennarana eruð þið beðin að skrá ykkur á eyðublað hvenær þið hyggist koma. Eyðublaðið verður sent til ykkar með börnum ykkar og í Mentor.is

Bestu kveðjur,
starfsfólk Borgaskóla.
 
 
 
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 10 af 52