|
Afreksverðlaun í fimleikum |
|
|
|
|

Svandís Unnur sem er í 4. bekk var tilnefnd til afreksverðlauna Fjölnis 2009 fyrir fimleika.
Hún hefur stundað fimleika af kappi frá því hún byrjaði að æfa fyrir þremur árum. Svandís hefur tekið þátt í mörgum mótum og náði þeim árangri að komast inn á Íslandsmeistaramót í áhaldafimleikum í 5. þrepi. Á síðasta innanfélagsmóti Fjölnis fékk hún 2 gull og 1 silfur.
Við óskum Svandísi Unni til hamingju með þennan frábæra árangur. |
|
|
Í dag var Umhverfisdagurinn í Borgaskóla. Allir árgangar voru með útivistarverkefni og voru fræddir um vistvernd, útiveru og gildi þess að hafa greiðan aðgang að jafn fallegri náttúru og við höfum. Í maí verða útivistarverkefni og minnt er á að nemendur komi vel klæddir í skólann svo þeir geti notið útiverunnar til fulls. |
|
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn |
|
|
|
|

Við óskum öllum nemendum okkar og aðstandendum þeirra gleðilegs sumars og þökkum fyrir samstarfið í vetur.
Starfsfólk Borgaskóla
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 8 af 52 |