Ólympíustærðfræði Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Háskólinn í Reykjavík býður upp á námskeið í Ólympíustærðfræði fyrir grunnskólabörn í 5. - 8. bekk, yngri nemendur geta tekið þátt hafi þau sérstakan áhuga. Ólympíustærðfræði eru þrautir sem settar eru fram í formi keppna. Þær reyna á hugmyndaflug og rökhugsun. Þetta eru skemmtileg og krefjandi verkefni fyrir þá sem hafa gaman af að glíma við þrautir og að reikna. Áhersla er lögð á ánægju af stærðfræði, innsæi og samvinnu. Bæklingar eru sendir heim með nemendum eins er hægt að skoða upplýsingar á heimasíðu námskeiðsins, www.hr.is/os

Borgaskóli

  • 5. og 6. bekkur: Fimmtudögum kl. 14:15, stofa 104.
  • 7. og 8. bekkur: Þriðjudaga kl. 14:00, stofa 204.

Háskólinn í Reykjavík:

  • 5. og 6. bekkur: laugardaga kl. 10:00, stofa 436 og 437.
  • 7. og 8. bekkur: laugardaga kl. 11:00, stofa 436.
 
Nýr vefur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Borgaskóli hefur í samvinnu við Menntasvið Reykjavíkur sett upp nýjan vef fyrir skólann. Býður hann upp á ýmiskonar nýmæli sem við erum viss um að muni falla í góðan jarðveg. Við reiknum með því að ljúka þróun hans þetta skólaár og vonum að hann verði að öflugri upplýsingaveitu og góðu samvinnusvæði. Gamli vefurinn verður áfram til, en ekki uppfærður.
 
Sumarfrí Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Þökkum nemendum og foreldrum fyrir liðinn vetur. Skólinn verður lokaður frá og með mánudeginum 23. júní og opnar aftur miðvikudaginn 6. ágúst. Skólasetning verður föstudaginn 22. ágúst. Skóladagatal fyrir veturinn 2008 - 2009 er undir krækjunni skóladagatal.
Njótið sumarsins!
Kveðja, Starfsfólk.
 
<< Upphaf < Fyrri 51 52 Næsta > Endir >>

Síða 52 af 52