Gróðursetning Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Græna bylgjan stóð fyrir gróðursetningu í Gufunesi þann 21. maí á afmælisdegi Skógræktarfélags Íslands og fyrrverandi forseta Íslands. Forseti félagsins og frú Vigdís Finnbogadóttir, voru viðstödd þennan skemmtilega viðburð og gróðursetttu fyrstu trén. Ástþór Óskar Ingólfsson og Jasmín Cassandra Routley, 6. bekk  voru boðin  ásamt skólastjóra til að gróðursetja með skólunum  í Reykjavík og gróðursettu þau tvö tré, eitt fyrir stráka og eitt fyrir stúlkur.

 
Starfsdagur 1. júní Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Þriðjudaginn 1. júní er starfsdagur í skólanum. Opið er í Hvergilandi frá kl 8-17:30 fyrir þau börn sem eru skráð þar.  

 
Vorskóli Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Miðvikudaginn 19. maí kl 15:00 verður öllum börnum sem hefja nám í 1. bekk Borgaskóla í haust boðið að koma í heimsókn í skólann. Tilgangur heimsóknarinnar er að auðvelda þeim upphaf skólagöngunnar næsta haust. Tilvonandi kennarar munu taka á móti börnunum, kynna þeim skólann og vinna með þeim skemmtileg verkefni.

Meðan börnin kynnast kennurunum og skólanum er foreldrum boðið til fundar með skólastjórnendum. Einnig er þeim boðið að heimsækja frístundaheimilið Hvergiland.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 6 af 53