Skólaslit og einkunnaafhending Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Útskrift hjá 10. bekk verður í sal skólans þriðjudaginn 8. júní, kl 18:00.
Eftir athöfnina fáum við okkur kaffi saman og eru foreldrar beðnir að koma með heimabakkelsi eða annað góðgæti til að setja á hlaðborð. Skólinn býður upp á kaffi og kalda drykki.

Hlökkum til að eiga hátíðlega stund með ykkur.

Miðvikudaginn 9. júní er einkunnaafhending hjá 1.-9. bekk.

  • 1.-3. bekkur kl 9:00,
  • 4.-6. bekkur kl 10:00
  • 7.-9. bekkur kl 11:00.
 
Fjöruferð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Annar bekkur fór í fjöruferð um daginn. Krakkarnir óðu óhikað út í ískalt Atlantshafið og unnu svo stærðfræðiverkefni með líffræðiívafi. Þessir krakkar hafa verið í útikennslu í allan vetur og eru orðnir ýmsu vanir.
 
Fleiri myndir á myndasíðunni- árgangur 2002.
 
Fjallaferðir Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Skemmtilegur dagur er á enda en í dag voru farnar ferðir á fjöll. Yngsta stigið gekk á Úlfarsfellið, miðstigið á Helgafellið og unglingastigið á Esjuna. Þessar göngur voru farnar í steikjandi hita og blæjalogni og höfðu allir gaman af. Nesti var snætt á miðri göngu og komumst allir á toppinn nema á Esjuna fóru unglingarnir mislangt eftir áhuga. Nokkrir fóru alla leið og varð Arnór Daði, 9. bekk fyrstur á toppinn. Þessar ferðir verða árlegur viðburður en í fyrra gengu allir á Úlfarsfellið.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 5 af 53